Leigusali er Ólafur Már Ólafsson.
Kennitala 121280-3619
VSK nr: 155311
Holt 1, 801 Selfoss.
Húsnæði er í eigu leigusala
Hið leigða er pláss í húsnæði í óupphituðu rými að 3000 fermetrum sem er ætlað fyrir...
-
Hjólhýsi
-
Fellihýsi
-
Tjaldvagn
-
Húsbíl
-
Heyvinnutæki og dráttarvélar
- Annað
Leigutaka er bent á að í samningi geri leigusali ráð fyrir að lengd hins geymda sé samkvæmt Ökutækjaskrá. Ef lengd er önnur vegna: Varadekks, gaskútafestinga, geymslukassa eða annars sem eykur lengd, að láta vita fyrir svo hægt sé að gera ráð fyrir því.
Leigutími
Leigutímabilið er bindandi af hálfu beggja aðila samnings. Frá september til maí hvers árs.
Afhending ferðavagna í september er eftir samkomulagi. Í maí eru ferðavagnar
afhentir einnig samkvæmt samkomulagi.
Leiguverð og greiðsla
Gengið er frá leigu og greiðslu hér á geymslaholti.com. Þegar greiðsla er framhvæmd er sjálfkrafa farið inn á öruggt, dulkóðað svæði hjá Landsbankanum á Íslandi. Engar upplýsingar eru geymdar inn á vefsvæðinu Geymslaholti.com.
Tryggingar á eigum leigutaka
Leigutaki ber einn ábyrgð á eigum sínum í hinu leigða húsnæði og skal sjá um að tryggja eigur sínar sjái hann ástæðu til. Leigusali mælist til þess að leigutaki láti tryggingarfélag sitt vita að ferðavagn eða aðrar eigur hans séu í geymdar í geymslunni.
Umgengni um hið leigða
Leigutaki er að leigja í sameiginlegu húsnæði með öðrum og hefur ekki umgengnisrétt að
húsnæðinu á leigutímanum. Ef um er að ræða nauðsynlegar undantekningar frá þessu ákvæði í ljósi verðmætabjörgunar skal leigutaki semja sérstaklega um það við leigusala.
Skil á hinu leigða
Sækja þarf ferðavagna eftir samkomulagi í maí. Gegn staðfestingu á eignarhaldi ef leigutaki eða eigandi sækir ekki í eigin persónu.
Ábyrgðir
Leigutaki á ekki kröfu á leigusala vegna bilana á bruna og öryggiskerfi hússins eða annarra aðstæðna sem geta komið óvænt eða óviðráðanlega upp sem ekki hægt að rekja til vanrækslu leigusala. Leigusali ber ekki ábyrgð á tjónum af völdum náttúruhamfara eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Annað
-
Leigutaki skal ganga þannig frá eigum sínum að ekki hljótist tjón á þeim eða af þeim yfir veturinn.
-
Vagn/bíll skal vera hreinn að utan og án olíu eða annarskonar leka.
-
Óheimilt er að geyma gaskúta, rafgeyma og önnur eld- og sprengifim efni.
-
Óheimilt er að geyma matvæli eða annað sem getur skemmst.
-
Salerni ferðavagna og húsbíla skulu vera tæmd hrein og án leka.
-
Tæma skal vatnstanka og vatnslagnir.
-
Loka skal öllum opnum lúgum og gluggum og passa upp á að ekki sé raki inn í vagni/hjólhýsi/húsbíl.
-
Óheimilt er að geyma þýfi eða aðra hluti sem leigutaki á ekki.
-
Komi þannig mál upp er leigusala heimilt að gefa lögreglu eða dómstólum upplýsingar um það sem er inn í húsnæðinu sem og upptökur úr eftirlitsmyndavélum.
Persónuverndarstefna
Fyrirtækinu er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem fyrirtækið meðhöndlar hvort sem það eru eigin gögn eða gögn viðskiptavina. Í persónuverndarstefnu fyrirtækisins kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig farið er með slík gögn. Markmið okkar er að starfsmenn, viðskiptavinir, aðrir viðsemjendur og einstaklingar, eins og við á hverju sinni, séu upplýstir um hvernig fyrirtækið safnar og vinnur persónuupplýsingar.
Ábyrgð
Fyrirtækið vinnur eða meðhöndlar persónuupplýsingar sem fyrirtækið safnar ýmist sem ábyrgðaraðili eða vinnsluaðili. Fyrirtækið hefur aðsetur að Holti 1, 801 Selfoss og er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru fyrirtækinu. Hægt er senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið geymsla@geymslaholti.com.
Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga
Þeim upplýsingum sem fyrirtækið safnar um viðskiptavini, er fyrirtækinu skylt að varðveita í samræmi við lög og reglur, samninga, samþykki hins skráða eða vegna annarra lögmætra hagsmuna ábyrgðaraðila.
Fyrirtækið safnar persónuupplýsingum um viðskiptavini sína í þrennskonar tilgangi; til að veita þeim aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði skilmála, til að tryggja að þjónusta sé löguð að þeirra þörfum og til að miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi.
Fyrirtækið safnar einungis upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustu hverju sinni. Kjósi viðskiptavinur að veita ekki persónuupplýsingar er hugsanlegt að fyrirtækið geti ekki veitt viðkomandi umbeðna þjónustu.
Miðlun persónuupplýsinga
Fyrirtækið nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Fyrirtækið geymir aldrei persónuupplýsingar lengur en nauðsynlegt þykir í samræmi við ákvæði skilmálana sem kynntir eru á heimasíðu félagsins hverju sinni.
Fyrirtækið miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila.
Öryggi gagna
Fyrirtækið leggur áherslu á að tryggja að varðveislu persónuupplýsinga sé háttað á öruggan máta. Fyrirtækið tryggir að viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir séu gerðar til að tryggja mesta öryggi gagna hverju sinni.
Persónuverndarstefna er endurskoðuð reglulega og stefna fyrirtækisins er að vera eins skýr og berorð um hvernig fyrirtækið safnar persónuupplýsingum og í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar. Fyrirtækið áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnunni hvenær sem er, án fyrirvara. Ný útgáfa skal auðkennd með útgáfudegi. Persónuverndarstefnu Fyrirtækisins má finna á www.geymslaholti.com Allar fyrirspurnir um meðhöndlun persónuupplýsinga og persónuverndarstefnu fyrirtækisins skal senda á netfangið geymsla@geymslaholti.com
Lög og varnarþing
Samningur sem aðilar gera með sér er í samræmi við íslensk lög.
Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands.